Fyrirtæki Versicherungskammer samsteypunnar eru traustir, heiðarlegir og sanngjarnir samstarfsaðilar. Það er ein af grundvallarástæðum velgengni okkar. Það er því sérstaklega mikilvægt að tryggja að farið sé að reglum og allt gert til að forðast eða halda í lágmarki áhættu í því tilliti, því það stuðlar að eigin verðgildi samsteypunnar.
Fyrir Versicherungskammer samsteypuna þýðir regluvarsla að öllum lögum og reglugerðum er fylgt ásamt reglugerðum eftirlitsstofnana og eiginreglum sem hafa áhrif út á við.
Að forðast áhættu með fyrirbyggjandi hætti og viðhafa stöðugt eftirlit með lagalegri áhættu er aðeins eitt af því sem regluvarslan miðar að. Auk þess eru áhættustýring, snemmbúin viðvörun, eftirlit og ráðgjöf á meðal kjarnaverkefna regluvörslu. Slík lagavitund ver fyrirtækið gegn fjárhagslegum skaða.
Í þessu skyni hefur Versicherungskammer samsteypan sett á stofn regluvörslutjórnunarkerfi (Compliance-Management-System eða CMS), siðareglur og innanhússreglur sem gilda jafnt um stjórnendur sem starfshópinn í heild sinni.Þetta stuðlar að langtímaþróun eðlilegrar regluvörslumenningar.