577-2025 Hafa samband Leit Lífeyrissparnaður
  • Lífeyrissparnaður í evrum
  • Séreignartrygging
  • Tilgreind séreign
  • Vaxtartrygging
Slysatrygging Ráðgjafarnir okkar Þjónusta Um okkur Mínar síður Launagreiðendur
  • Lífeyrissparnaður
    • Lífeyrissparnaður í evrum
    • Séreignartrygging
    • Tilgreind séreign
    • Vaxtartrygging
  • Slysatrygging
  • Ráðgjafarnir okkar
  • Þjónusta
  • Um okkur
  • Mínar síður
  • Launagreiðendur
English Site (EN) English Site (EN)

WachstumGarant:
Drifkrafturinn á bak við sparnaðinn þinn

Ávöxtun með allt að 100% tryggingu

Sparnaðurinn þinn vex í takt við gengi helstu fyrirtækja heims, á meðan allt að 100% trygging verndar hverja evru sem þú leggur inn. Það tekur eina mínútu að skilja hvernig.

Hvað er WachstumGarant?

Ávöxtun og öryggi fara saman

Þýsk lífeyrissparnaðarleið sem sameinar möguleika á góðri ávöxtun og allt að 100% tryggingu á greidd iðgjöld.
Ávöxtun

Fjárfest í leiðandi fyrirtækjum heims

Í gegnum fjárfestingarleiðina IOK2 tekur sparnaðurinn mið af þróun alþjóðlegra hlutabréfamarkaða. Fjárfestingarstefnan miðar jafnframt að því að draga úr áhættu þegar markaðir lækka.
Öryggi

Allt að 100% af greiddum iðgjöldum tryggð

WachstumGarant tryggir að þú fáir að lágmarki 90% af greiddum iðgjöldum við upphaf lífeyristöku, eða 100% ef þú velur þá leið. Með Lock-In getur tryggða inneignin jafnframt hækkað þegar sparnaðurinn skilar ávöxtun, en hún lækkar aldrei aftur.

Það sem er einstakt

Tryggða inneignin getur aðeins hækkað

Í hverjum mánuði sem sparnaðurinn skilar hagnaði er hluti hans færður yfir á tryggða inneign. Hækkunin er varanleg og getur aldrei gengið til baka.

Í hnotskurn

Staðreyndirnar sem skipta máli

allt að 100%

af iðgjöldum þínum tryggð við lok samningstíma

€ EUR

í evrum, stöðugum gjaldmiðli

IOK2

vísitölutengd fjárfestingaleið frá Versicherungskammer

1 / 7

lægsti áhættuflokkur (SRI) – hannað með öryggi í huga

DE

Versicherungskammer – traustur bakhjarl með meiri eignir í stýringu en allt íslenska lífeyriskerfið til samans.

BaFin · Seðlabanki Íslands

tvöfalt eftirlit – í Þýskalandi og á Íslandi

Sniðið að íslenskum aðstæðum

Þrír kostir WachstumGarant

Nýttu sparnaðinn í fyrstu íbúðina

Þú getur ráðstafað inneigninni inn á húsnæðislán – lífeyrissparnaðurinn og heimilið vinna saman.
 

Mótvægi við krónuna

Sparnaðurinn þinn er í evrum – mótvægi við samtryggingalífeyrinn sem er í krónum. Innbyggð áhættudreifing.

Erfanlegt og sveigjanlegt

Rennur til erfingja við andlát, með möguleika á útgreiðslu fyrir tímann við alvarleg veikindi eða örorku.
 

Fylgstu með sparnaðinum hvenær sem er

Samningurinn þinn: Staða, samningstími og greiðslusaga. Núverandi virði: Fylgstu með sparnaðinum í rauntíma. Skjöl: Skírteini og lykilupplýsingaskjöl (KID) til niðurhals. Breytingabeiðnir: Iðgjöld, rétthafi, greiðsluhlé.
Mínar síður - þjónustugátt Bayern Líf

Skráðu þig inn á Mínar síður

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum til að fá allar helstu upplýsingar um samninginn þinn.
Innskráning

Viltu vita meira?

Hringdu eða sendu okkur póst

Sendu okkur tölvupóst

Mán.- fös.: 9 til 12 og 13 til 16
Hafa samband

Hafðu samband símleiðis

Mán.- fös.: 9 til 12 og 13 til 16
577-2025

PM-Premium Makler

PM-Premium Makler GmbH
Garðatorgi 7, 210 Garðabær

WachstumGarant fyrir þinn sparnað

Sjáðu hvaða vara hentar þér

WachstumGarant er grunnurinn að öllum þremur sparnaðarleiðunum okkar. Veldu eina – eða talaðu fyrst við ráðgjafa.
Skoða vörurnar Bóka fría ráðgjöf

Vörurnar okkar

Séreignartrygging Tilgreind Séreign Einkasparnaðarleið Slysatrygging

Þjónusta

Þjónustuyfirlit Hafa samband Skjöl og skilmálar Mínar síður

Um okkur

Bayern Líf Ráðgjafarnir okkar Launagreiðendur

Frekari upplýsingar 

Fréttatilkynningar Bayern Líf WachstumGarant Sjálfbærnireglugerð (ESB) 2019/2088
Fyrirtækið og ábyrgðaraðilar Upplýsingar um gagnavörslu Samræmi Niðurhal Vafrastillingar / Vafrakökur Segja upp samningi