577-2025 Hafa samband Leit Lífeyrissparnaður
  • Lífeyrissparnaður í evrum
  • Séreignartrygging
  • Tilgreind séreign
  • Vaxtartrygging
Slysatrygging Ráðgjafarnir okkar Þjónusta Um okkur Mínar síður Launagreiðendur
  • Lífeyrissparnaður
    • Lífeyrissparnaður í evrum
    • Séreignartrygging
    • Tilgreind séreign
    • Vaxtartrygging
  • Slysatrygging
  • Ráðgjafarnir okkar
  • Þjónusta
  • Um okkur
  • Mínar síður
  • Launagreiðendur
English Site (EN) English Site (EN)

Vörurnar okkar

Lífeyrissparnaður – rétta lausnin fyrir þig.

Séreignartrygging

Viðbótarlífeyrissparnaður með allt að 2% mótframlagi launagreiðanda
1–4% af launum þínum + allt að 2% mótframlag launagreiðanda Sparnaður í evrum með 100% tryggingu (WachstumGarant) Útgreiðsla frá 60 ára aldri – í einu lagi eða sem ævilangur lífeyrir Iðgjöld dragast frá tekjuskattsstofni Hafa samband Skoða nánar

Tilgreind séreign

3,5% af skyldulífeyrinum verður þín séreign
Beindu 3,5% af 11,5% skylduiðgjaldi launagreiðandans í þinn eigin séreignarsparnað Erfist við andlát – fullur erfðaréttur Sparnaður í evrum með 100% tryggingu Iðgjöld dragast frá tekjuskattsstofni Hafa samband Skoða nánar

Vaxtartrygging

Frjáls sparnaður utan lífeyriskerfisins
Sparnaður í evrum með 100% tryggingu Lágmarkssamningstími 12 ár Skerðir ekki greiðslur almannatrygginga · fjármagnstekjuskattur greiðist aðeins af ávöxtuninni við útgreiðslu Tilvalið fyrir íbúðakaup, sparnað fyrir börnin eða varasjóð Hafa samband Skoða nánar

Algengar spurningar

Er ellilífeyririnn minn öruggur, þó svo að ég taki þátt í fjármálamarkaðnum?
Tryggingin PrivatRente WachstumGarant tryggir þér að minnsta kosti 90% af inngreiddum iðgjöldum við upphaf lífeyristöku. Á sama tíma átt þú kost á því að hækka greiðslu inneignar vegna þess að fjárfest er fyrir hluta iðgjaldanna í vísitölumiðaðri fjárfestingu (IOK). Fjárfestingarsérfræðingar okkar annast dreifingu fjárins og taka mið af hlutabréfum ávöxtunarsterkra fyrirtækja á heimsvísu. Tekjur þínar eru tryggðar, hlutfallslega, mánaðarlega (Lock-in) og hækka þannig tryggða inneign þína við upphaf lífeyristöku.
„Ævilangur tryggður lífeyrir, sem aðeins getur hækkað.“ Hvað þýðir þetta eiginlega?
Alla jafna eru öll greidd iðgjöld tryggð að 90% við upphaf lífeyristöku. Auk þess hagnast þú á nútímalegri fjárfestingaráætlun þar sem fjárfest er í þeim fyrirtækjum sem skila hæstum arði á heimsvísu. Við hagstæða þróun vísitölumiðuðu fjárfestingaráætlunarinnar (IOK) leggjum við mánaðarlega til hliðar hluta af hagnaðinum í lífeyrinn þinn - Lock-in. Og fari einhvern tíma svo að árangurinn sé ekki svo góður, þarft þú ekki að kvíða neins: Arður sem hefur áunnist einu sinni getur ekki glatast. Við lok samningstímans, þegar þú ferð á eftirlaun, geturðu valið um þágildandi, hagnaðartengda inneign annars vegar eða tryggða inneign hinsvegar. Okkar loforð er: Þú átt alltaf kost á hærri inneigninni. Jafnvel þó svo að inneignin hafi lækkað við upphaf lífeyristöku, vegna hugsanlegrar lækkunar á hlutabréfamörkuðum, áttu í lokin að minnsta kosti meira inni en í upphafi, því þú getur að minnsta kosti gert ráð fyrir uppsafnaðri tryggðri inneign - þ.e.a.s. 90% af greiddum iðgjöldum auk hagnaðar, auk þess ávinnings sem við höfum tryggt þér í hverjum mánuði.
Hvers vegna er viturlegt að fjárfesta eftirlaunin í evrum?
Síðan 2006 er evran leiðandi gjaldmiðill í reiðufé á heimsvísu. Þar með er evran orðin einn mikilvægasti og einkum stöðugasti gjaldmiðill heims. Með fjárfestingu í stöðugum gjaldmiðli á tryggingartakinn þannig kost á að hagnast á gengismuni, til viðbótar við kosti fjárfestingarinnar. Tryggingartaki er háður gengisáhættu vegna þess að inneignin er háð gengisáhættu. Ef gengi evru gagnvart mynt heimalandsins fellur, leiðir það til þess að verðgildi greiðslna lækkar. Ef gengi evru gagnvart mynt heimalandsins hækkar, getur það leitt það til þess að verðgildi greiðslna hækkar.
Er mögulegt að taka út inneign að hluta eða að gera hlé á iðgjaldagreiðslum?
Hafi iðgjöld ekki borist í tvo mánuði, verður samningurinn gerður iðgjaldsfrír. Hægt er að endurvirkja samninginn innan 24 mánaða frá þeim degi sem samningurinn var gerður iðgjaldsfrír. Að þessum tíma liðnum er ekki hægt að endurvirkja samninginn og samningurinn verður þá iðgjaldsfrír þar til samningstíma lýkur. Höfuðstólsúttektir að hluta til eru mögulegar í öllum útgáfum lífeyrissparnaðar WachstumGarant. Nánari upplýsingar er að finna í almennum skilmálum 7. málsgreinar 4. greinar.
Hvað verður um innborguð iðgjöld við andlát?
Þú ákveður hver skuli fá hvaða greiðslur úr samningnum við andlát. Við andlát á sparnaðartímanum greiðum við inneignina á hverjum tíma, þó að minnsta kosti greidd iðgjöld á hverjum tíma. Einnig við andlát á greiðslutíma lífeyrisins getur þú ákveðið hver skuli fá það fé sem eftir er.

Viltu vita meira?

Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sniðna að þínum þörfum

Sendu okkur tölvupóst

Mán.- fös.: 9 til 12 og 13 til 16
Hafa samband

Hafðu samband símleiðis

Mán.- fös.: 9 til 12 og 13 til 16
577-2025

PM Premium Makler

Garðatorgi 7
210 Garðabæ
Fyrirtækið og ábyrgðaraðilar Upplýsingar um gagnavörslu Samræmi Niðurhal Vafrastillingar / Vafrakökur Segja upp samningi