Kæri viðskiptavinur,
Starfsemi erlendra lífeyrissjóða á Íslandi hefur verið í brennidepli hjá íslenskum fjölmiðlum undanfarin misseri. Opin umræða er okkur, hjá Bayern Líf, mjög dýrmæt enda þjónar hún viðskiptavinum og heldur þeim upplýstum.
Hins vegar hefur umræðan verið fremur einhliða, þar sem einblínt er á kostnað þess að nýta sér erlenda lífeyrissjóði umfram þá íslensku án þess að benda á hvað hann færir viðskiptavinum – 90% tryggða endurgreiðslu allra iðgjalda auk annarra kosta.
Í ljósi þessarar þörfu umræðu viljum við hjá Bayern Líf benda á að þýsku sjóðirnir verða samkvæmt lögum að gefa upp allan kostnað ólíkt íslensku lífeyrissjóðunum ásamt því að rifja upp með ykkur alla þá kosti sem fylgja því að velja okkar þjónustu.